Geitur í garðinum

42 Þegar hann var búinn að þurrka mestu máln- inguna af gleraugunum sínum leit hann upp. – Sælt veri fólkið, sagði hann. Það er fína veðrið í dag. – Hvað er eiginlega að gerast hér? spurði nágranninn. – Ég var að prófa randa-málningar-sprautu- vélina mína en ég þarf greinilega að fínstilla hana aðeins, sagði Gamli-Nói. – Randa-málningar-sprautu-vél? hváði nágranninn furðu lostinn. – Já, það er vél sem ég set allskonar málningu í og svo þegar ég sprauta málningunni úr vélinni þá býr hún til flottar mislitar rendur. – Svona eins og regnboga? spurði ég. Hvar ætli Gamli- Nói hafi fengið hugmyndina að vélinni?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=