Geitur í garðinum

40 En nú tókst okkur Nóa að koma geitunum út úr garðinum og rákum þær upp götuna að húsinu hans Nóa. Maðurinn kom hlaupandi á eftir okkur, eldrauður í framan, og kallaði að þetta væri ekki búið. Hann myndi kæra þetta til lögreglunnar! Konan hans kom í garðshliðið og kallaði á hann. – Sigurður! Láttu ekki sjá þig svona! Þú ert á brókinni, maður! Okkur tókst loksins að koma geitunum inn í garðinn og loka hliðinu. Gvendólína var enn með blóm í munninum. – Heldurðu að löggan komi? spurði ég. – Ég er hræddur um það, sagði Nói áhyggjufullur. Þetta var alveg svakalegt. – En samt svolítið hlægilegt, sagði ég. – Já, svolítið, sagði Nói og svo fórum við að skellihlæja við tilhugsunina um geiturnar við morgunverðarborðið. Af hverju heldur Nói að lögreglan komi?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=