Geitur í garðinum

37 Við Nói hlupum líka til. En geiturnar höfðu styggst við þessi læti og stukku hver í sína átt svo úr varð heljarmikill eltingarleikur. Maðurinn reyndi að ná í afturendann á Brák en við það datt hann endilangur á magann. Þegar hann var að brölta aftur á fætur kom Breki hlaupandi og stangaði í rassinn á honum svo hann flaug aftur á magann og rann alveg út í blómabeð!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=