Geitur í garðinum

36 Konan hljóp að dyrunum en um leið kom maður út úr húsinu. Hann var bara á nærbuxum! – Hvaða voðaleg hræðsla er þetta alltaf við geitunga, sagði maðurinn. – Nei, nei! Þa … það eru geit … geit … stamaði konan. – Þú þarft nú ekki að fara á taugum þó það séu einhver geitungagrey á sveimi. Svo þagnaði hann og glápti furðu lostinn á morgunverðargestina. – Hva? Hva? stamaði hann. Geitur! – Já! Geitur! sagði konan hans. Og þær eru að borða morgunmatinn okkar! Um leið beit Breki í dúkinn og togaði í hann svo allt sem á honum var, þar á meðal Gvendólína, hrundi út af borðinu. En nú tók maðurinn undir sig stökk og hljóp æpandi að borðinu. – Burt! Skammirnar ykkar! Burt! Hvaða misskilningur var á milli mannsins og konunnar?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=