Geitur í garðinum

34 – Þær eru farnar! sagði hann óðamála. – Ha? – Geiturnar eru farnar! – Áttu þær ekki að fara á morgun? spurði ég. – Nei, þú skilur ekki. Það hefur einhver skilið hliðið eftir opið og nú eru þær stroknar! Komdu! Litli-Nói hljóp af stað og ég á eftir honum. Við vorum bara rétt lögð af stað niður götuna þegar við heyrðum skyndilega mikil óp úr garði nágrannans. – Nei! Nei! Nei! æpti einhver kona. Burt! Burt! Sigurður! Sigurður, komdu strax! Það eru geitur! Við hlupum inn í garðinn og stönsuðum þegar við sáum hvað var að gerast. Geiturnar stóðu þar við dúkað borð hlaðið brauði, áleggi, snúðum og fleira góðgæti. – Sigurður! hrópaði kona sem stóð rétt hjá borðinu. Það eru geitur! Burt með ykkur!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=