Geitur í garðinum

31 Já, alveg rétt, ég hef ekki sagt ykkur að Gamli-Nói er með hænur. Yfirleitt eru þær í hænsnakofanum en stundum er þeim hleypt út til að spígspora í garðinum. Við Litli-Nói förum þá og náum í eggin sem þær hafa orpið. Einu sinni var líka hani. En þegar hann byrjaði að gala sitt gagga-la-gú klukkan fjögur á nóttunni þá urðu nágrannarnir mjög fúlir og kærðu Gamla-Nóa til löggunnar. Þeir sögðu að það væri ekki hægt að sofa fyrir hanagali. Sá eini sem heyrði ekki galið var Gamli-Nói vegna þess að hann svaf alltaf með tappa í eyrunum. En því miður sagði löggan að hann mætti ekki vera með hana sem vekti fólk eldsnemma og Gamli- Nói varð að gefa hanann frá sér. Af hverju þurfti Gamli-Nói að gefa hanann frá sér?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=