Geitur í garðinum

30 – Ó, ó, ó! sagði Nói og beindi bununni frá mér og ofan í stóran járnbala. – Fyrirgefðu, sagði hann svo og brosti, því honum fannst örugglega skemmtilegt að ég skyldi hafa orðið fyrir vatnsbununni. – Allt í lagi, sagði ég, því ég hafði miklu meiri áhuga á geitunum heldur en því hvort ég blotnaði aðeins. Breki og Brák komu nú hlaupandi til mín og reyndu að komast ofan í brauðpokann sem ég var með. Þær vissu nefnilega að ég kom alltaf með smávegis af brauði handa þeim. Og það fannst þeim gott. Þau fengu sitthvora brauðsneiðina. – Hvar er Gvendólína? – Hún er þarna inni, sagði Nói og benti á gamla stýrishúsið í garðinum. Þegar ég gægðist þangað inn sá ég að Gvendólína lá þar og hjá henni tvær hænur! Hvað er stýrishús ?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=