Geitur í garðinum

28 Þegar við komum heim til Nóa rákum við geiturnar inn í garðinn og þær byrjuðu undir eins að bíta grasið. Gamli-Nói fór strax inn í bílskúrinn sinn og virtist alveg hafa gleymt geitunum. – Nú er hann að fara að finna eitthvað upp, sagði Litli-Nói, og þá hugsar hann ekki um neitt annað. Við verðum þá bara að sjá um geiturnar. – Já, en ég veit ekkert um geitur, sagði ég. – Ekki ég heldur, sagði Nói og brosti. Við bara gerum okkar besta svo þeim líði vel meðan þær eru hjá okkur. Og þá var ég, Sunna Sól Þorvaldsdóttir, orðin geitahirðir! Hvernig ætli Sunnu finnist að passa geiturnar?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=