Geitur í garðinum

27 – OG kiðling! Konan hætti nú allt í einu að vera reið og varð öll eitt bros. – Ég hef alltaf verið svo hrifin af geitum, sagði hún. Sérstaklega kiðlingum. Nú flautuðu bílarnir. – Já, já, rólegir bara, kallaði konan. Það liggur ekkert á! Þau eru með geitur! Svo stakk hún höfðinu inn um gluggann til að geta betur skoðað geitafjölskylduna. En þegar bílstjórarnir fóru enn einu sinni að flauta og kalla þá klappaði hún Gvendólínu og kvaddi um leið og hún þakkaði Gamla-Nóa innilega fyrir að leyfa sér að sjá þessar fallegu geitur. Síðan keyrðum við aftur af stað með halarófu af bílum á eftir okkur. Af hverju skipti konan skapi og varð glöð?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=