Geitur í garðinum

26 – Hvað ert þú eiginlega að gera? sagði hún æst. – Ég var bara að skoða þennan fallega regnboga, sagði Gamli-Nói elskulega og benti á listaverkið. – Og heldurðu að þú getir bara stoppað hér úti á miðri götu til að skoða einhvern regnboga? – Já, ég fékk nefnilega hugmynd að frábærri uppfinningu, sagði Gamli-Nói. Konan var mjög hneyksluð. Og nú byrjuðu bílstjórarnir aftur að flauta. – Ég er að flýta mér og hef ekki tíma til að … Konan þagnaði og hrökk aftur á bak þegar hafurinn Breki stakk hausnum fram milli sætanna og jarmaði. – Hva? Hva? Hún gat varla talað, hún var svo undrandi. – Ertu með geit í bílnum!? Þá stökk Gvendólína upp á bakið á pabba sínum og klifraði fram í sætið til okkar Nóa.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=