Geitur í garðinum

25 Hvers vegna ætli konan hafi verið reið? En nú gall við hávært bílflaut. Og svo annað og enn eitt. Það var eins og stór bíla-lúðrasveit væri allt í einu byrjuð að spila. Þegar við kíktum út sáum við heila bílaröð fyrir aftan okkur. Gamli-Nói hafði nefnilega stansað á miðri götunni og bílarnir komust ekki framhjá okkur. Geiturnar voru staðnar á fætur og jörmuðu órólega. Þær kunnu greinilega ekki að meta þessa tónleika. Og nú bættust fleiri bílflautur í flautusveitina. Þetta var orðinn alveg svaklegur hávaði. En Gamli-Nói bara starði á regnbogann og virtist ekki taka eftir neinu. Allt í einu var bankað á rúðuna hjá honum og hann hrökk við. Þar fyrir utan stóð reiðileg kona. Gamli-Nói renndi niður rúðunni og ætlaði að fara að segja eitt- hvað en hún varð fyrri til.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=