Geitur í garðinum

21 Gamli-Nói var í góðu skapi og byrjaði að syngja hástöfum: Ólafía, hvar er Vigga? Ólafía, hvar er Vigga? Hún er upp í sveit að elta gamla geit. Ólafía, hvar er Vigga? Gvendólína kunni greinilega vel að meta sönginn því allt í einu stakk hún höfðinu á milli framsætanna og jarmaði sitt eigið lag í kapp við Gamla-Nóa. En svo kárnaði gamanið, því hún klifraði á milli framsætanna og hlammaði sér í fangið á Gamla-Nóa! Gamla-Nóa brá svo mikið að hann var næstum því búinn að keyra út af veginum og ofan í skurð. Hvers vegna var Gamli-Nói næstum búinn að keyra út af?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=