Geitur í garðinum

20 En um leið og hafurinn var kominn upp í bílinn hoppaði Gvendólína kiðlingur út og hljóp uppfyrir húsið. Meðan Tómas og Gamli-Nói pössuðu að foreldrarnir strykju ekki úr bílnum eltum við Nói Gvendólínu. Hún hélt greinilega að við værum að leika við sig og hoppaði og skoppaði út um allt. En loksins tókst okkur að króa hana af. Eftir töluvert puð náðum við að grípa hana og koma henni með samstilltu átaki inn í bílinn. Gamli-Nói var ekki lengi að skella hurðinni aftur. Svo kvöddum við Tómas gamla og ókum af stað niður holóttan veginn. Geitunum leist greinilega ekkert á allan þennan hristing og lögðust niður. Sennilega höfðu þær aldrei áður ferðast í skröltandi rúgbrauði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=