Geitur í garðinum

Fjórði kafli Nú hjálpuðumst við að við að koma geitunum upp í bílskrjóðinn. Það var ekki sérlega auðvelt en tókst að lokum eftir mikið basl. Sérstaklega virtist hafrinum Breka lítast illa á að fara í ferðalag. Hann streittist á móti en Gamli-Nói stóð í bílnum og tosaði í hornin og við Litli-Nói ýttum á rassinn á honum af öllu afli. Og þá gekk það. 19

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=