Geitur í garðinum

16 Skyndilega hoppaði litla geitin niður úr jeppanum og kom í loftköstum til okkar Litla-Nóa og stangaði í fótinn á mér. – Á! Hún var með pínulítil horn upp úr höfðinu og það var dálítið sárt að fá þau beint framan á legginn. – Gvendólína vill greinilega leika við okkur, sagði Nói. Ég klappaði henni varlega en þá tók hún á rás hoppandi og skoppandi og ég gat ekki annað en farið að hlæja, hún var eitthvað svo kát og fjörug. Hún hljóp að buxum sem hengu þarna á snúru og reyndi að hoppa upp í þær. En þær voru of hátt uppi svo hún varð að gefast upp. Hvað merkir að taka á rás?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=