Geitur í garðinum

15 – Eru þetta geitur? spurðum við Litli-Nói í kór. Þetta var nú dálítið asnaleg spurning hjá okkur því auðvitað sáum við að þetta voru geitur! Við höfðum bæði séð geiturnar í Húsadýragarðinum. – Geitur eru það, skinnin mín, sagði Tómas gamli og klappaði stærstu geitinni. Má ég kynna ykkur fyrir nýjustu meðlimum Nóafjölskyldunnar? Hér er herra Breki, þetta er frú Brák og bílstjórinn í jeppanum heitir Gvendólína. – Vá! eigum við þessar geitur? stamaði Litli-Nói út úr sér. Pabbi hans hló og hristi höfuðið. – Ég þarf að fara á spítala í nokkra daga, sagði Tómas, og hann Gamli-Nói ætlar að vera svo almennilegur að taka þær og passa fyrir mig á meðan. Af hverju þurftu geiturnar að fá pössun?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=