Geitur í garðinum

11 Já, svona bílar eru nefnilega kallaðir rúgbrauð og Gamli-Nói segir að það sé vegna þess að þeir séu í laginu eins og stórt rúgbrauð. Ég veit ekki hvort það er rétt hjá honum eða hvort hann er bara að grínast. Af hverju heldur Sunna að Gamli-Nói sé ekki góður bílstjóri? Við keyrðum út úr bænum og vorum óralengi á leiðinni vegna þess að Gamli-Nói keyrir MJÖG hægt og er sífellt að skoða allt í kringum sig. Ég held að hann sé ekkert sérstaklega góður bílstjóri. – Erum við kannski að fara upp í sveit? spurði ég. – Fara upp í sveit að hitta gamla geit , söng Gamli-Nói og hló. Það kemur allt í ljós, ungfrú góð. Kemur allt í ljós.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=