Dægurspor

79 FRÖKEN REYKJAVÍK úr söngleiknum Rjúkandi ráð Hver gengur þarna eftir Austurstræti og ilmar eins og vorsins blóm með djarfan svip og ögn af yfirlæti á ótrúlega rauðum skóm? Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún fröken Reykjavík, sem gengur þarna eftir Austurstræti á ótrúlega rauðum skóm. Og því er eins og hafi vaxið vorsins blóm á stræti. Hver situr þar með glóð í gullnum lokkum í grasinu á Arnarhól svo æskubjört í nýjum nælonsokkum og nýjum, flegnum siffonkjól? Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún fröken Reykjavík, sem situr þar með glóð í gullnum lokkum í grasinu á Arnarhól svo æskubjört og fríð og nett í nýjum kjól og sokkum. Hver svífur þarna suður Tjarnarbakka til samfundar við ungan mann sem bíður einn á brúnum sumarjakka hjá björkunum við Hljómskálann? Ó, það er stúlka engum öðrum lík, það er hún fröken Reykjavík, sem svífur þarna suður Tjarnarbakka, til samfundar við ungan mann sem bíður einn hjá björkunum við Hljómskálann, Hljómskálann. Hjónin Finnur Eydal og Helena Eyjólfsdóttir. Einnig söng á plötunni Óðinn Valdimarsson. Eftirstríðsárin á Íslandi

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=