Dægurspor

Dægurspor 76 BRAGGABLÚS Ein í bragga, Magga, gægist út um gluggann. Bráðum sér hún Skuggabaldur skunda hjá. Enn einn túrinn, stúrin, olíu á skúrinn er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá. Í vetur, betur gekk henni að galdra til sín glaða og kalda karla sem oft gáfu aur. En Magga í sagga situr ein í bragga á ekki fyrir olíu, er alveg staur. Fyrst kom Bretinn, rjóður, yndislega góður, þá bjó hún Magga á Borginni í bleikum kjól. Svo kom Kaninn, þaninn, kommúnistabaninn, þá kættist Magga ofsalega og hélt sín jól. Svo færðist aldur yfir eins og galdur og ávallt verra og verra varð í karl að ná. Nú er Magga stúrin því olíu á skúrinn er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá. Magnús Eiríksson Hljómsveit leikur á Hótel Borg. Frá vinstri: Höskuldur Þórhallsson trompet, Kristján Kristjánsson klarínett, Jóhannes Eggertsson trommur, Sveinn Ólafsson saxófónn, Ólafur Gaukur Þórhallsson gítar, Einar Waage kontrabassi og Carl Billich píanó.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=