ADHD Handbók

5 Inngangur Í grunnskóla er lagður hornsteinn að námi og framtíð barna. Þar læra þau hegðun og gildi sem eru í samræmi við væntingar og menningu samfélagsins. Þau læra grundvallarreglur varðandi skólagöngu, félagsleg samskipti og öðlast leikni og færni til frekara náms. Það skiptir því öll börn miklu að vel takist til og skólaárin nýtist sem best. Á síðustu árum og áratugum hefur þeim börnum fjölgað sem hafa fengið greiningu vegna athyglisbrests og ofvirkni/hvatvísi eða ADHD. Viss hegðunareinkenni koma oft fyrst fram hjá börnum með ADHD þegar þau byrja í skóla og þau geta átt í meiri erfiðleikum en jafnaldrar þeirra með að mæta væntingum skólasamfélagsins. Skólagangan reynir því iðulega bæði á þau og fjölskyldur þeirra. Fyrst og fremst ætti að líta á greiningu á ADHD sem vegvísi að viðeigandi fræðslu, meðferð og úrræðum sem snúa að barninu og nærumhverfi þess. Í því sambandi er mikilvægt að beina sjónum að sterkum hliðum barna með ADHD, sem eru fjölmargar, og nálgast barnið í leik og starfi út frá áhugasviði þess og styrkleikum. Börn með ADHD eru oft opin, skapandi, hugmyndarík og orkumikil. Í uppeldi og í skólastarfi er nauðsynlegt að virkja á jákvæðan hátt áhuga þeirra og

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=