ADHD Handbók

36 læra að taka ábyrgð sjálfur á námi sínu“. Þessi afstaða er skiljanleg því að sjálfsögðu þurfa unglingar með ADHD að læra það. En til þess að það geti orðið þarf að kenna þeim þessa færni sérstaklega og taka mið af þroska þeirra. Í flestum tilfellum er áfram þörf á aðhaldi, stuðningi og samstarfi heimilis og skóla í gegnum unglingsárin og oft og tíðum einnig á framhaldsskólaárum. Nemendur á unglingastigi þurfa að hafa á valdi sínu fjölbreytta náms- tækni og -aðferðir til að geta tekist á við margþætt nám; á því skólastigi reynir námið enn meira en áður á vinnsluminni, vinnsluhraða, tíma- stjórnun, skipulag, áætlanagerð og skriflega tjáningu, sjá t.d. kaflann um námstækni. Margir nemendur með ADHD, ekki síst þeir sem eru með sértæka námserfiðleika, geta átt erfitt með að tjá sig skriflega og halda utan um skrifleg verkefni. Oft fá þeir góðar hugmyndir en þurfa aðstoð við að koma þeim á blað. Þetta getur verið bagalegt, ekki síst á prófum, þegar skrifa á ritgerð eða svara ritgerðarspurningum. Þá stranda þeir oft eftir nokkrar setningar. Gagnlegt getur verið að bjóða þeim stuðning við uppbyggingu skriflegra verkefna. 46 Foreldrar, kennarar og nemendur á unglingastigi verða sam- eiginlega að leitast við að finna jafnvægi á milli krafna um sjálfstæð vinnubrögð annars vegar og þarfa nemenda fyrir stuðning og aðhald hins vegar. Smám saman þarf að draga skipulega úr stuðningi eftir því sem nemandinn þroskast og öðlast meiri færni. Vissir nemendur munu samt alltaf þurfa stuðning vegna ADHD einkenna þar eð hægur vinnsluhraði og skert vinnsluminni háir þeim fram á fullorðinsár. Nauðsynlegt getur því verið að bregðast við þessu með því að hafa verkefni styttri eða gefa lengri tíma en almennt gerist; lengja próftíma, búta próf niður og leyfa nemanda að taka þau í lotum með hléum á milli eins og bent hefur verið á hér að framan, sjá t.d. kaflann um fyrir- komulag námsmats. 47 Mikilvægt er að viðhalda reglulegum samskiptum og upplýsingamiðlun til foreldra unglinga með ADHD eftir að nem- endur eru komnir í framhaldsskóla. Unglingsstúlkur með ADHD Hætt er við að einkenni ADHD hjá stúlkum fari fram hjá kennur- um þar eð áberandi agavandamál eru oftast vægari meðal þeirra en ADHD – Farsæl skólaganga Námsgagnastofnun 2013 HverNig viNN ég? Nafn: ______________________________________________________________________ Hvað á ég að gera? _____________________________________________ Hvernigætla ég að gera það? ____________________________________ Já Nei Þegar ég loka augunum sé ég fyrirmér hvernig égætla að vinna verkefnið. ⎕ ⎕ Ég sé fyrirmér hvernig égætla að ljúka verkefninu. ⎕ ⎕ Spyrðu þig nokkrum sinnum ámeðan þú ert að vinna verkefnið: Spyrðu þig líka: Já Nei Er ég búin(n) aðmissa einbeitinguna og farinn að hugsa um annað? ⎕ ⎕ Tek ég eftir því sem ermikilvægt og leiði hjámér það sem skiptir ekkimáli. ⎕ ⎕ Hef ég unnið eins lengi og ég hafði ákveðið? ⎕ ⎕ Þarf ég að gera smáhlé á vinnunni? ⎕ ⎕ Ef ég næ að kláraætla ég að verðlaunamig og ___________________________ _____________________________________________________________ Ef ég næ ekki að kláraætla ég að skipuleggja áframhaldið og _________________ _____________________________________________________________ Sjálfsmat Hvernig gengurmér? ADHD – Farsæl skólaganga Námsgagnastofnun 2013 HverNig FiNNst mér best Að lærA? Nafn: __________________________________________________________________ Dagsetning: _________________ Já Nei Ég læri best þegar það er hljótt. ⎕ ⎕ Ég get lært og einbeittmér þótt það sé svolítill kliður í kringummig. ⎕ ⎕ Mér finnst best að vinna við borð. ⎕ ⎕ Mér finnst best að liggja á gólfinu við vinnuna. ⎕ ⎕ Ég vinn best ein(n). ⎕ ⎕ Þegar ég byrja á verkefni þá lýk ég við það. ⎕ ⎕ Ég á stundum erfittmeð að ljúka við verkefni. ⎕ ⎕ Mér finnst gott að vinnameð öðrum. ⎕ ⎕ Mér finnst gott að vinna verkefni þar sem ég þarf að hreyfamig og skapa. ⎕ ⎕ Hverju vilt þú breyta í námsumhverfi þínu? ______________________________________________________________ ______________________________________________________________ ______________________________________________________________ sjálfsmat 13 14

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=