ADHD Handbók

31 • Vissar persónur. Nemandi getur orðið „háður“ kennara sínum eða stuðningsfulltrúa og átt erfitt ef viðkomandi er fjarverandi. Eins getur nemandi átt í viðvarandi erfiðleikum með samskipti við sömu skóla- félagana. Það getur líka átt við vissa kennara. Ferli í búingsklefanum sturta sápa handklæði nærföt buxur peysa sokkar greiða sér úlpa skór skólataska Hér á eftir fara ábendingar og hugmyndir um hegðunarmótun og bekkjarstjórnun sem geta komið í veg fyrir árekstra og óvæntar upp- ákomur. Vissulega fer það eftir aldri, þroska nemenda og aðstæðum hvað á við hverju sinni. Koma má í veg fyrir öryggisleysi og óæskilega hegðun með undirbúningi. Hér er dæmi um þrepaskipt ferli í búningsklefa. Teikningarnar geta t.d. verið á tveimur renningum sem eru heftaðir saman. Þær eru af vefnum do2Learn. Í umhverfi þar sem skortur er á skýrum römmum, stjórnun og eftirliti fullorðinna eins og t.d. í búningsklefum geta börn með ADHD átt erfitt með að lesa í aðstæður og haga sér í samræmi við væntingar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=