ADHD Handbók

27 Hjálpargögn • Nota má hjálpargögn við skrift eins og hjálpargrip, penna eða blýanta með góðu gripi ef nemandi á erfitt með fínhreyfingar. • Heyrnarhlífar sem dempa hávaða og hljóðrænt áreiti geta auðveldað einbeitingu eða heyrnartól þegar hlustað er á tónlist eða hljóðbók. • Sumum nemendum með ADHD hentar að nota hljóðbækur sem fást hjá Námsgagnastofnun og á Blindrabókasafninu. Það getur hjálpað til við einbeitingu að hlusta og fylgjast samtímis með textanum í bókinni eða á tölvuskjá. • Nota má talgervla í tölvum til að fá stafrænan texta lesinn. Hægt er að fá orðin eða setningarnar í textanum sem lesinn er merkt og auðvelda þannig lesanda að fylgjast með í textanum. Velja má um kvenmanns- eða karlmannsrödd. Forritið EasyTutor er eitt slíkt forrit, annað er IvonaReader. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um notkun fást hjá TMF-Tölvumiðstöð og á Blindrafélaginu. Þar fást einnig upplýsingar um íslenska talgervilinn. • Forritið Foxit Reader opnar stafræn skjöl (PDF), t.d. vinnubækur, og gerir nemendum sem eiga erfitt með að skrifa kleift að vinna skrifleg verkefni með hjálp tölvu í stað þess að nota skriffæri, vista þau og prenta. Upplýsingar má fá hjá TMF-Tölvumiðstöð. • Ýmis hugbúnaður er til þess fallinn að gera nám sjónrænt. Flestar tölvur hafa leiðréttingarpúka og hugbúnað sem styður tímastjórnun og skipulag, samanber gula miða. • Í símum eru möguleikar á minnishringingu en í þá má setja áminningu fram í tímann um skiladaga verkefna, stundatöflu o.fl. , sjá nánar á vefsíðu ADHD samtakanna og hjá TMF-Tölvumiðstöð. Kennarar, foreldrar og nemendur geta sent áminningar í farsíma fram í tímann í gegnum ýmis dagbókarform á vefnum. Þá má einnig finna gagnleg smáforrit í farsíma og snjallsíma. • Tímavaki er tímamælir sem gefur sjónrænt merki um að vinnulota sé hafin, sýnir hvað tímanum líður og hvenær lotunni lýkur. Í þessum bókum má finna hagnýt ráð sett fram á aðgengilegan hátt fyrir börn á mið- og unglingastigi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=