ADHD Handbók

16 Greining Til þess að barn uppfylli greiningarskilmerki um ADHD þarf það að hafa hamlandi einkenni athyglisbrests með eða án ofvirkni/ hvatvísi við ólíkar aðstæður í daglegu lífi, til dæmis heima og í skóla, um lengri tíma. Einkenni ADHD koma ekki alltaf fram við rólegar og vel skipulagðar kringumstæður. Nauðsynlegt er því að byggja á upplýsingum frá þeim sem best þekkja til hegðunar barnsins við mismunandi aðstæður. Kjarninn í greiningarferlinu er því sjúkra- og þroskasaga barnsins. Venjulega geta foreldrar og kennarar gefið nauðsynlegar upplýsingar þó einnig sé þörf á beinum athugunum á barninu með viðtölum og prófum. Við greiningu á ADHD er stuðst Hvatvísi ADHD ísjakinn Ofvirkni Námserfiðleikar Erfiðleikar í tilfinningastjórn Kvíðaraskanir Lágt sjálfsmat Seinkun á þroska heilans Athyglisbrestur Fylgikvillar Skert stýrifærni Skert tímaskyn Svefnerfiðleikar Læra seint af reynslunni Greiningarskilmerki: • Einkenni komi fram við ólíkar aðstæður. • Einkenni komi fram yfir lengri tíma. Oft eru aðeins fáein einkenni ADHD áberandi, það eru þau sem eru ofansjávar á ísjakanum, önnur eru falin, fljóta undir yfirborðinu, en geta engu að síður haft mikil áhrif á heildarmynd ADHD.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=