Laxdæla saga

51 Kjartan sagði að flestum bilaði nú áræði þó að þeir þættust vera allgóðir karlmenn. Bolli sagðist ekki vita hver væri huglausastur en margir tóku undir að ekkert vit væri í þessari ráðagerð. Þegar konungsmenn höfðu heyrt þetta fóru þeir í brott og sögðu konungi. Rifjið upp: 1. Hver var konungur í Noregi þegar Kjartan og Bolli komu þangað? 2. Þegar þeir komu út var mikið ósætti milli konungs og nokkurra Íslendinga sem voru staddir í Noregi. Hvers vegna? 3. Kjartan keppti í sundi (það fólst einkum í því hvor þeirra tveggja gæti kaffært hinn lengur). Við hvern keppti hann? 4. Hvað vildi Kjartan gera til að svara kröfum konungsins um að Íslendingar tækju kristna trú? Til umræðu: • „... mér finnst trú þeirra heldur veikleg,“ segir Bolli. Hvað á hann við? • Hvað finnst ykkur um afstöðu Kjartans? Eru áform hans skynsamleg?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=